Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing: Árshlutauppgjör júní 2022


Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Kviku eignastýringar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 2022 fyrir Veðskuldabréfasjóðinn Virðingu.

  • Afkoma sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 0 kr. samkvæmt rekstrarreikningi þar sem skuldabréfaeigendur fá afkomu sjóðsins greidda í formi vaxtaauka á útgefin skuldabréf.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2022 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.

Viðhengi



Attachments

Virðing árshlutareikningur 30.6.22 v4 26.8.22