Félagsbústaðir hf. - Fjárhagsáætlun 2023-2027


Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti á fundi sínum 15. september 2022 fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2023 og langtímaáætlun fyrir árin 2024 til 2027. Fjárhagsáætlunin byggir á útgönguspá fyrir árið 2022.

Helstu atriði í fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 eru:

  • Áætlað er að rekstrarniðurstaða ársins 2023 verði jákvæð um 5.886 m.kr.
  • Áætlað er að rekstrartekjur nemi 6.328 m.kr.
  • Áætlað er að rekstrargjöld nemi 3.628 m.kr.
  • Áætlað er að matsbreytingar fjárfestingareigna nemi 7.555 m.kr.
  • Áætlað er að greiðslubyrði lána nemi 2.632 m.kr.
  • Áætlað er að handbært fé í lok árs nemi 321 m.kr.
  • Rekstur félagsins er sjálfbær á tímabilinu og handbært fé frá rekstri nægir til að greiða afborganir af núverandi og nýjum skuldum félagsins.
  • Áætlað er að eiginfjárhlutfall verði 56,7% í lok árs.
  • Áætlað er að íbúðum félagsins fjölgi um 88.
  • Áætlað er að fjárfestingakostnaður nemi 6.767 m.kr.
  • Áætlað er að 26% fjárfestingakostnaðar verði aflað með stofnframlögum og 74% með lánsfé.
  • Stefnt er að áframhaldandi útgáfu félaglegra skuldabréfa til að standa undir fjárfestingakostnaði.
  • Keyptar verða íbúðir í nýbyggingum í kjölfar kaupréttarsamninga, á almennum fasteignamarkaði og byggðir íbúðakjarnar.

Meðfylgjandi er áætlun ársins 2023 og langtímaáætlun 2024 til 2027.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is sími 520-1500

Viðhengi



Attachments

Fjárhagsáætlun Félagsbústaða 2023-2027