Marel: Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2022 birt 2. nóvember, afkomufundur 3. nóvember 2022


Marel hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2022 eftir lokun markaða þann 2. nóvember 2022.

Afkomufundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 3. nóvember 2022 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila en þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.

Afkomufundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagins í Austurhrauni 9, Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður streymt beint á marel.com/webcast og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (PIN 84639778#)
  • NL: +31 20 721 9495
  • UK: +44 33 3300 9035
  • US: +1 646 722 4956

Fjárhagsdagatal

  • 4F 2022 – 8. febrúar 2023
  • Aðalfundur – 22. mars 2023

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir +7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.