Níu mánaða uppgjör


Hærra verð til stórnotenda skilar bættri afkomu

Handbært fé frá rekstri 51 milljarður

Helstu atriði árshlutareiknings

  • Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 241,4 milljónum USD (35 mö.kr.), en var 153,9 milljónir USD á sama tímabili árið áður og hækkar því um 56,8%.  
  • Hagnaður tímabilsins var 213,7 milljónir USD (31 ma.kr.), en var 102,6 milljónir USD á sama tímabili árið áður.
  • Rekstrartekjur námu 497,8 milljónum USD (72,2 mö.kr.) og hækka um 100,9 milljónir USD (25,4%) frá sama tímabili árið áður.
  • Nettó skuldir lækkuðu um 253,1 milljón USD (36,7 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok september 1.247,7 milljónir USD  (180,9 ma.kr.).
  • Handbært fé frá rekstri nam 351,7 milljónum USD (51 ma.kr.), sem er 47,1% hækkun frá sama tímabili árið áður.
  • Meðalverð til stórnotenda án flutnings var 42,1 USD á megavattstund, sem er hæsta verð á fyrstu níu mánuðum ársins í sögu Landsvirkjunar.

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Rekstrarniðurstaða fyrstu níu mánaða ársins var betri en nokkru sinni fyrr í sögu Landsvirkjunar. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði jókst um 57% miðað við sama tímabil í fyrra og nam rúmum 35 milljörðum króna. Þessa aukningu má einkum rekja til skýrra rekstrarmarkmiða og hækkunar á raforkuverði til stórnotenda, en hana má meðal annars rekja til endursamninga undanfarinna ára sem tryggt hafa að flestir viðskiptavinir Landsvirkjunar borga nú verð sem er sambærilegt við það sem gengur og gerist í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við.

Sjóðstreymi tímabilsins var mjög sterkt og var handbært fé frá rekstri 51 milljarður, sem skilaði sér í lækkun nettó skulda um 36,7 milljarða.

Rekstur aflstöðva gekk vel fyrstu níu mánuðina á sama tíma og raforkukerfi Landsvirkjunar var rekið nálægt hámarksafköstum. Mikið reyndi á starfsfólk, aflstöðvar og verkferla fyrirtækisins við að mæta þessari miklu eftirspurn, oft við mjög krefjandi aðstæður vegna dræms innrennslis til lóna og tíðra óveðra síðastliðinn vetur.

Fjölbreytt ný eftirspurn eftir raforku er bæði frá núverandi viðskiptavinum og áhugaverðum nýjum aðilum. Henni er því miður ekki hægt að mæta nema að takmörkuðu leyti, enda er orkukerfið fulllestað með tilliti til bæði afls og orku. Óhjákvæmilegt er að forgangsraða frekari sölu við  þessar aðstæður. Á sama tíma er unnið hörðum höndum að því að afla tilskilinna leyfa fyrir frekari uppbyggingu orkuvinnslu í vatnsafli, vindorku og jarðvarma, með sérstaka áherslu á Hvammsvirkjun, Búrfellslund  og stækkun Þeistareykja- og Sigöldustöðva.“

Viðhengi



Attachments

Fréttatilkynning Árshlutareikningur janúar til september 2022