Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 3. ársfjórðungs 2022/23


Hagar hf. birta uppgjör 3. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. september til 30. nóvember 2022, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 12. janúar nk.

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 13. janúar kl. 08:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið á vefslóðinni  https://www.hagar.is/skraning þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.