Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2022


Norðurþing
Reikningsskil

Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2022

Byggðarráð Norðurþings mun samþykkja ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2022 á fundi sínum þann 4. maí 2023. Fyrri umræða um ársreikninginn fór fram í sveitarstjórn þann 13. apríl sl.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 11. maí 2023, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð.

Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd.

Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 6.302 milljón króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 5.465 milljónum króna.

Rekstrartekjur A hluta námu 4.830 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 4.123 milljónum króna.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var neikvæð um 39 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 347 milljóna króna neikvæðri rekstrarniðurstöðu.
Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 137 milljónir króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 327 milljónir króna. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 2.442 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af var eigið fé A hluta um 1.373 milljónir króna.

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 3.594 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 311 stöðugildum.

Íbúafjöldi Norðurþings í árslok 2022 var 3.155 og fjölgað um 85 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall samstæðu samkvæmt núgildandi reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 77% árið 2021 niður í 67% í árslok 2022.  

Nánari upplýsingar veitir Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings í síma 464-6100

Húsavík, 13. apríl 2023

Viðhengi



Attachments

Norðurþing ársreikningur 2022