Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu 4. ársfjórðungs og ársuppgjörs 2022/23


Hagar hf. birta uppgjör 4. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. desember 2022 til 28. febrúar 2023, og ársuppgjör félagsins eftir lokun markaða, fimmtudaginn 27. apríl nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, föstudaginn 28. apríl kl. 08:30. Þar mun Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður auk þess varpað í gegnum netið á vefslóðinni https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.