Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum
Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 1.700 m.kr.
Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.700 m.kr. í 3ja mánaða óverðtryggða víxilinn með 10,75% vöxtum. Engin tilboð bárust í 6 mánaða verðtryggða víxilinn.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudaginn 15. júní 2023.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri Alma íbúðafélag hf., í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is