Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 53 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 1.185 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 135 m.kr. að nafnvirði á bilinu 3,15%-3,19%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Útistandandi fyrir útboð voru 24.285 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 1.000 m.kr. Heildarstærð flokksins er því óbreytt 24.285 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 1.050 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 8,49%-8,63%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Útistandandi fyrir útboð voru 21.520 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er því óbreytt 21.520 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Hörður Hilmarsson
Skrifstofustjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
Netfang: hordur.hilmarsson@reykjavik.is        
Sími: 822-3174