Frá Ljósleiðaranum


Að höfðu samráði við Samkeppniseftirlitið hefur frestur til að ljúka samrunamáli vegna kaupa Ljósleiðarans ehf. á stofnneti Sýnar hf. verið framlengdur um 20 virka daga, eða til og með 28.september 2023.
Samkvæmt upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu verður viðbótarfresturinn nýttur til úrvinnslu gagna og sjónarmiða sem komið hafa fram í tengslum við samrunann.

Tengiliður:
Dagný Jóhannesdóttir
framkvæmdastjóri
dagny.johannesdottir@ljosleidarinn.is