Endurskoðuð útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar september til desember 2023


Borgarráð samþykkti á fundi sínum 31. ágúst 2023 endurskoðaða útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir september til desember 2023. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 er gert ráð fyrir að borgarsjóður taki lán fyrir allt að 21.000 m.kr. á árinu.

Útgáfuáætlun er endurskoðuð með hliðsjón af framlagningu á árshlutauppgjörum
Reykjavíkurborgar, en sex mánaða uppgjör verður lagt fram og kynnt í borgarráði þann 7.
september nk.

Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar á seinni hluta ársins eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum: 20. september, 18. október, 15. nóvember og 6. desember.

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi að lágmarki 1 virkum degi fyrir útboð.

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi.

Nánari upplýsingar gefur:
Halldóra Káradóttir
Sviðsstjóri Fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111
Netfang: halldora.karadottir@reykjavik.is