Festi hf.: Endurkaup vika 35

Kopavogi, ICELAND


Í 35. viku 2023 keypti Festi alls 48.860 eigin hluti fyrir 9.145.032 kr. eins og hér segir:

Vika Dagsetning Tímasetning viðskipta Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð
35 30.ágú 12:23:54 432 186,5 80.568
35 31.ágú 15:17:29 40.000 187 7.480.000
35 1.sep 10:19:01 3.060 188 575.280
35 1.sep 13:22:17 990 188 186.120
35 1.sep 15:29:31 4.378 188 823.064
      48.860   9.145.032


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 8.910.813 hluti eða 2,85% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 959.673 eigin hluti fyrir 184.909.927 kr. og á í dag 8.959.673 hluti sem samsvarar 2,87% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,12% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).