Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum - leiðrétting


Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum - leiðrétting

ALMA íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum til 3ja og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 2.620 m.kr.

Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.560 m.kr. í 3ja mánaða óverðtryggða víxilinn með 11,00% vöxtum og 520 m.kr. í 6 mánaða óverðtryggða víxilinn með 11,21% eða samtals 2.080 m.kr.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 15. september 2023 en ekki fimmtudagurinn 15. september eins og kom fram í fyrri tilkynningu.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri Alma íbúðafélag hf., í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is