Eik fasteignafélag hf.: Viðræðum Eikar fasteignafélags og Reita fasteignafélags um sameiningu félaganna hætt


Eik fasteignafélag hf. og Reitir fasteignafélag hf. hafa hætt viðræðum um mögulegan samruna fasteignafélaganna tveggja.

Ráðgjafar og sérfróðir aðilar hafa greint eignasöfn beggja félaga og umgjörð mögulegra viðskipta. Í ljósi þeirra upplýsinga og samskipta sem liggja fyrir meta aðilar stöðuna þannig að þeir muni ekki, að óbreyttu, ná sameiginlegri niðurstöðu um virðismat og skiptahlutföll milli félaganna sem væri þess eðlis að stjórn Eikar fasteignafélags væri tilbúin til þess að mæla með við hluthafa sína að teknu tilliti til stöðu félagsins á markaði og ítarlegum samanburði á verðmati leigu- og þróunareigna félaganna.

Stjórn mun áfram leitast við að auka veg hluthafa sinna og gæta þeirra hagsmuna, halda samtalinu við þá áfram og kanna aðra möguleika til að efla félagið til hlítar. Stjórn hyggst, eins og áður hefur komið fram, birta viðbót við greinargerð sína vegna breytinga á valfrjálsu tilboði Regins hf. í allt hlutafé Eikar fasteignafélags eigi síðar en einni viku áður en gildistími tilboðsins rennur út.

Nánari upplýsingar veitir:

Bjarni K. Þorvarðarson, stjórnarformaður Eikar fasteignafélags, bjarnith@live.com, s. 820-5080