Arshlutareikningur Reykjavíkurborgar janúar - september 2023


Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar janúar – september 2023 var lagður fyrir borgarráð í dag 30. nóvember.

Rekstrarniðurstaða samantekins árshlutareiknings Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var neikvæð um 2,9 ma.kr. en áætlun gerði ráð fyrir að reksturinn yrði jákvæður um 9,9 ma.kr. sem var 12,8 ma.kr. lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Helstu frávik frá áætlun má rekja til fjármagnsliðar eða 8,8 ma.kr. Skýrist það af hærri verðbólgu á tímabilinu en áætlun gerði ráð fyrir, auk hækkunar vaxta. Önnur helstu frávik voru í hærri launakostnaði A-hluta, hækkun lífeyrisskuldbindingar og minni matsbreytingum fjárfestingaeigna Félagsbústaða. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA), skilaði 35,3 ma.kr. í afgang sem var um 4,1 ma.kr. undir áætlun en var 9,5 ma.kr. betri niðurstaða en á sama tímabili árið 2022.

Heildareignir A- og B-hluta samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi 30. september 2023 námu samtals 900,3 ma.kr. og heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 481,9 ma.kr.  Eigið fé nam 418,3 ma.kr. og þar af var hlutdeild minnihluta 16 ma.kr. Eiginfjárhlutfall A- og B-hluta er í lok tímabils 46,5% en var 48,7% um síðustu áramót.

Veltufé frá rekstri hjá A- og B-hluta nam 23,7 ma.kr. á tímabilinu eða 12,9% af tekjum. Fjárfestingar að frádregnum seldum eignum námu 38,7 ma.kr. Greidd gatnagerðagjöld og seldur byggingarréttur nam 3 ma.kr.  Lántaka og ný stofnframlög námu 34,4 ma.kr., og afborganir lána og leiguskulda námu 22,2 ma.kr. Handbært fé í lok tímabils var 31 ma.kr.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 1,4 ma.kr. en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 754 m.kr. Niðurstaðan var því 2,2 ma.kr. lakari en gert var ráð fyrir. Skatttekjur voru ásamt öðrum tekjum 4,2 ma.kr. yfir áætlun. Frávik í rekstrargjöldum voru 6,5 ma.kr. yfir áætlun, þar af var frávik í rekstri skóla- og frístundasviðs 2,8 ma.kr. og breyting lífeyrisskuldbindingar 1,5 ma.kr. Fjármagnskostnaður var 243 ma.kr. yfir áætlun þar af voru vaxta- og verðbótagjöld 1,6 ma.kr. hærri en áætlað var vegna hærri verðbólgu og hærri vaxta en gert var ráð fyrir.  Á mót kom að arðgreiðslur voru 1,3 ma.kr. yfir áætlun.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var jákvæð um 6,6 ma.kr. en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 8,4 ma.kr. Niðurstaðan fyrir fjármagnsliði og afskriftir var því 1,8 ma.kr. lakari en áætlun gerði ráð fyrir. 

Heildareignir A-hluta samkvæmt efnahagsreikningi 30. september 2023 námu samtals 279,3 ma.kr. og heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 198,2 ma.kr.  Eigið fé nam 81,2 ma.kr. og eiginfjárhlutfall nam 29,1% en var 32,1% um síðustu áramót.

Veltufé frá rekstri var jákvætt um 8 ma.kr. og var um 268 m.kr. lægra en áætlað var á tímabilinu. Heildarfjárfestingar námu 18,4 ma.kr. en samanlögð gatnagerðagjöld og tekjur af byggingarétti námu 3 ma.kr. Lántaka tímabilsins nam 18,8 ma.kr. Afborganir lána og leiguskulda námu 4,3 ma.kr. Handbært fé í lok tímabils nam 21,2 ma.kr.

Með 13. gr. laga nr. 25/2020 og 2. gr. laga nr. 22/2021 hefur Alþingi vikið til hliðar fjármálareglum sveitarfélaga skv. ákvæði 64. gr. sveitarstjórnarlaga til loka árs 2025. Var það gert til að liðka fyrir möguleikum sveitarfélaganna að grípa til viðspyrnu og sóknar í stað samdráttaraðgerða vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf., Jafnlaunastofa sf. og Þjóðarleikvangs ehf.

Reykjavík, 30. nóvember 2023.

Nánari upplýsingar veitir
Halldóra Káradóttir,
sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
halldora.karadottir@reykjavik.is

Viðhengi



Attachments

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar 30.9.2023 Skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs með árshlutareikningi janúar - september 2023 REYKJAVÍKURBORG - FRÉTTATILKYNNING TIL KAUPHALLAR_2023-11-30