Í 48. viku 2023 keypti Festi alls 19.260 eigin hluti fyrir 3.409.020 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
48 | 29.nóv | 11:51:24 | 19.260 | 177 | 3.409.020 |
19.260 | 3.409.020 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 3.226.966 hluti eða 1,06% af hlutafé félagsins. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Festi hefur nú keypt samtals 3.246.226 eigin hluti fyrir 599.999.945 kr. og á í dag 3.246.226 hluti sem samsvarar 1,07% af hlutafé félagsins.
Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað var að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,15% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna yrði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).