Í 1. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 24.345.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
02.01.2024 | 10:41 | 1.500.000 | 4,000 | 6.000.000 |
03.01.2024 | 15:07 | 1.500.000 | 3,980 | 5.970.000 |
04.01.2024 | 11.39 | 1.500.000 | 3,980 | 5.970.000 |
05.01.2024 | 14:22 | 1.500.000 | 4,270 | 6.405.000 |
Samtals | 6.000.000 | 24.345.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.
Nova Klúbburinn átti 122.500.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 128.500.000 hluti, eða um 3,37% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 529.460.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is