Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar 2024


Borgarráð samþykkti á fundi sínum 11. janúar 2024 útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að borgarsjóður taki lán fyrir allt að 16.500 m.kr. á árinu.

Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á virkum skuldabréfaflokkum borgarsjóðs, með útgáfu á nýjum skuldabréfaflokkum eða með öðrum hætti sem álitinn er hagkvæmur út frá markaðsaðstæðum hverju sinni.

Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar eru fyrirhuguð á eftirfarandi dögum:

24. janúar
14. febrúar
6. mars
3. apríl
22. maí
26. júní
14. ágúst
18. september
30. október
13. nóvember
4. desember

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi að lágmarki 1 virkum degi fyrir útboð.

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi.

Nánari upplýsingar gefur:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is