Í 2. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 4.810.000 eigin hluti að kaupverði 20.535.600 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
08.01.2024 | 09:44 | 1.500.000 | 4,250 | 6.375.000 |
09.01.2024 | 10:36 | 1.500.000 | 4,300 | 6.450.000 |
10.01.2024 | 10.35 | 1.500.000 | 4,260 | 6.390.000 |
11.01.2024 | 09:40 | 310.000 | 4,260 | 1.320.600 |
Samtals | 4.810.000 | 20.535.600 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023.
Nova Klúbburinn átti 128.500.000 hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 133.310.000 hluti, eða um 3,49% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 549.995.600 kr. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið, en Nova Klúbburinn átti enga eigin hluti fyrir framkvæmd hennar, og er því heildareign félagsins í samræmi við framangreint. Endurkaup máttu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og áætlunin vera í gildi þar til því hámarki var náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/ZDRhOGZiN2EtMzI3Ni00ZTBiLTk2NzQtZGM5NDljOWYwYzM3LTEyNjAzMjY=/tiny/Nova.png)