Sýn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 2 keypti Sýn 260.000 eigin hluti að kaupverði 12.584.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
8.jan 09:40:01 65.000 48,7 3.165.500
9.jan 10:52:50 65.000 48,7 3.165.500
10.jan 10:42:36 65.000 48,4 3.146.000
12.jan 12:54:01 65.000 47,8 3.107.000
Samtals   260.000   12.584.000
         

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. nóvember 2023.

Sýn átti 2.128.979 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 2.388.979 eigin hluti eða sem nemur 0,95% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sýn hefur keypt samtals 2.388.979 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,95% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 107.521.768 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 300.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 16. febrúar 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Sýnar í gegnum netfangið fjarfestatengsl@syn.is