Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum


Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum sjö mánaða víxli, OLGERD240829 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 10,4% flötum vöxtum, en víxillinn verður skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 22. janúar 2024.

Nánari upplýsingar veitir:

Jón Þorsteinn Oddleifsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs í síma 820-6491 eða jon.thorsteinn.oddleifsson@olgerdin.is

Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522-4000, netfang: arnar.saemundsson@fossar.is

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522-4000, netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is