Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 53 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 1.965 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 310 m.kr. að nafnvirði á bilinu 3,45%-3,50%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 305 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,49%. Útistandandi fyrir útboð voru 24.285 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 1.000 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 24.590 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 1.655 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 8,83%-9,0%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.425 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 8,94%. Útistandandi fyrir útboð voru 23.560 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 24.985 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 30. janúar.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is