Eimskip birtir ársreikning 2023 og uppgjör fjórða ársfjórðungs


Kynningarfundur 14. febrúar 2024

Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning 2023 og uppgjör fjórða ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 13. febrúar 2024.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. febrúar nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.