Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVKN 35 1 í dag


Í dag, miðvikudaginn 14. febrúar, efnir Reykjavíkurborg til útboðs, í samræmi við útgáfuáætlun 2024, á skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1. Heimild til lántöku á árinu er 16.500 en þetta er annað útboð ársins.

RVK 32 1 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fasta 2,5% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2032. Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 31.773 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr.

RVKN 35 1 ber fasta 6,72% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 26. mars 2035. Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 24.025 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 20. febrúar nk.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 í dag.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
Netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is