Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar - Leiðrétting


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 4.215 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 250 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 4,25%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Heildarstærð flokksins er því óbreytt 32.733 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 3.965 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 8,35%-8,48%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 3.765 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 8,42%. Útistandandi fyrir útboð voru 24.985 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 28.750 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 20. febrúar.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Skrifstofa fjárstýringar og innheimtu
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is