SKEL fjárfestingafélag hf.: Aðalfundur 7. mars 2024 – framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar


Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags hf. verður haldinn þann 7. mars 2024 kl. 16:00 í Ballroom salnum í Reykjavík Edition, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar er runninn út. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:

  • Birna Ósk Einarsdóttir
  • Guðni Rafn Eiríksson
  • Jón Ásgeir Jóhannesson
  • Nanna Björk Ásgrímsdóttir
  • Sigurður Kristinn Egilsson

Nánari upplýsingar um frambjóðendur og tillögu tilnefninganefndar er að finna í viðhengi og á heimasíðu SKEL: https://skel.is/hluthafar/hluthafafundir-skel

Framboðsfrestur til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig runninn út. Eftirfarandi einstaklingar eru í framboði til tilnefningarnefndar:

  • Almar Þór Möller
  • Álfheiður Eva Óladóttir

Samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar skal hluthafafundur kjósa tvo nefndarmenn en nýkjörin stjórn félagsins skipar einn úr stjórn í nefndina í kjölfar aðalfundar. Almar og Álfheiður verða því sjálfkjörin til setu í nefndinni.

Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins: https://skel.is/hluthafar/hluthafafundir-skel

Skráning á aðalfundinn á fundarstað er frá kl. 15:00 á fundardegi.

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri, fjarfestar@skel.is

Viðhengi



Attachments

Skýrsla tilnefningarnefndar 2024 Framboð til tilnefningarnefndar SKEL