Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2023


Norðurþing
Reikningsskil

Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2023

Byggðarráð Norðurþings mun samþykkja ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2023 á fundi sínum þann 24. apríl 2024. Fyrri umræða um ársreikninginn fór fram í sveitarstjórn þann 4. apríl sl.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 2. maí 2024, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð.

Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd.

Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 6.508 milljón króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 6.004 milljónum króna.

Rekstrartekjur A hluta námu 5.284 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum að fjárhæð 4.709 milljónum króna.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var jákvæð um 195 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 192 milljóna króna neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 190 milljónir króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 133 milljónir króna. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.511 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af var eigið fé A hluta um 1.743 milljónir króna.

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 3.594 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 317 stöðugildum.

Íbúafjöldi Norðurþings í árslok 2023 var 3.200 og fjölgað um 45 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall samstæðu samkvæmt núgildandi reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 67% árið 2022 niður í 65% í árslok 2023.  

Húsavík, 4. apríl 2024: Nánari upplýsingar veitir Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings í síma 464-6100.

Viðhengi



Attachments

Norðurþing ársreikningur 2023 Uppf 03.04.2024