Útboð ríkisbréfa RIKB 08 1212


Miðvikudaginn 17. janúar, kl. 14:00, fer fram útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Lánasýslu ríkisins.

Þetta er flokkur ríkisbréfa, RIKB 08 1212, sem ber 8,5% vexti sem greiddir eru árlega og er með lokagjalddaga 12. desember 2008.

Heildarfjárhæð þessa útboðs verður á bilinu 2.500 til 5.000 milljónir króna að nafnverði.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 19. janúar 2007.

Í þessu útboði óskar Lánasýsla ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisverðbréfa:

Flokkur	ISIN	Lokagjalddagi	Útistandandi fjárhæð*	Lánstími
RIKB 08 1212	IS0000013787	12. desember 2008	4,7 m.kr.	nú 1,9 ár
*Að nafnverði

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Lánasýsla ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á meðalávöxtunarkröfu samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á uppgjörsdegi útboðsins.  Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni.  Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1). 

Nánari upplýsingar veitir Laufey Ómarsdóttir í síma 540 7500.


Pièces jointes

Terms.pdf Form of Auction Process.pdf Utbosskilmalar.pdf
GlobeNewswire