Miðvikudaginn 17. janúar, kl. 14:00, fer fram útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Lánasýslu ríkisins. Þetta er flokkur ríkisbréfa, RIKB 08 1212, sem ber 8,5% vexti sem greiddir eru árlega og er með lokagjalddaga 12. desember 2008. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður á bilinu 2.500 til 5.000 milljónir króna að nafnverði. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 19. janúar 2007. Í þessu útboði óskar Lánasýsla ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisverðbréfa: Flokkur ISIN Lokagjalddagi Útistandandi fjárhæð* Lánstími RIKB 08 1212 IS0000013787 12. desember 2008 4,7 m.kr. nú 1,9 ár *Að nafnverði Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Lánasýsla ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á meðalávöxtunarkröfu samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á uppgjörsdegi útboðsins. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1). Nánari upplýsingar veitir Laufey Ómarsdóttir í síma 540 7500.