Afkoma Exista hf. á fyrsta ársfjórðungi 2007 Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista birti í dag kannað árshlutauppgjör fyrir fyrstu þrjár mánuði ársins 2007. Í samræmi við yfirlýsingar félagsins sem fram komu í síðustu afkomuskýrslu frá 8. febrúar sl. hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á reikningsskilum Exista frá og með áramótum: •Kjölfestueignir í fjármálafyrirtækjum, þ.e.a.s. í Sampo Group og Kaupþingi banka, verða hér eftir færðar með hlutdeildaraðferð í reikningum félagsins •Stjórn Exista hefur ákveðið að nýta heimild til þess að færa reikninga félagsins í evrum frá og með fyrsta ársfjórðungi 2007 Helstu niðurstöður árshlutauppgjörs fyrir fyrsta ársfjórðung 2007 eru þessar: •Hagnaður eftir skatta 641 milljón evra (57,2 milljarðar króna) •Hagnaður á hlut 0,06 evrur (5 krónur) •Arðsemi eigin fjár 112,8% á ársgrundvelli •Hagnaður af fjárfestingastarfsemi 467 milljónir evra eftir skatta (41,7 milljarðar króna) •Hagnaður af rekstrarstarfsemi 174 milljónir evra eftir skatta (15,5 milljarðar króna) •Heildareignir 6,76 milljarðar evra (593 milljarða króna) í lok mars og jukust um 54% á tímabilinu •Eigið fé 2,64 milljarðar evra (232 milljarða króna) í lok tímabils og jókst um 39% frá áramótum •Fjármögnun félagsins á fyrsta ársfjórðungi nam 1,67 milljörðum evra •Eiginfjárhlutfall var 39,1% hinn 31. mars sl. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður: „Rekstur Exista var afar traustur á fyrsta ársfjórðungi en uppgjörið í dag markar viss þáttaskil hjá félaginu. Með því að færa hlutdeild í hagnaði Kaupþings og Sampo eykst enn frekar vægi fjármálaþjónustu í tekjum félagsins og tekjugrunnurinn styrkist. Einnig er það rökrétt skref að færa reikninga félagsins í evrum enda starfar Exista á alþjóðlegum markaði. Rekstur samstæðunnar gengur vel og horfur eru almennt jákvæðar hjá tengdum félögum. Áfram verður byggt á þeim grunni sem lagður hefur verið með það að markmiði að tryggja hluthöfum trausta langtímaávöxtun.” Frekari upplýsingar um reikninga félagsins veitir: Sigurður Nordal framkvæmdastjóri samskiptasviðs sími: 550 8620 (ir@exista.com)