Í samræmi við reglur um viðskipti lánastofnana við Seðlabanka Íslands býður Seðlabankinn þriðjudaginn 19. júní 2007, kl. 11 f.h., þeim lánastofnunum sem átt geta viðskipti við bankann, lán til 8 daga gegn veði í verðbréfum sem Seðlabankinn metur hæf til tryggingar. Nýjar reglur um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabankann taka gildi í þessari viku og fela þær m.a. í sér að veðlánadagar flytjast frá þriðjudögum yfir á miðvikudaga. Fréttatilkynning þess efnis verður send út í dag. Lánin bjóðast á fastri ávöxtunarkröfu, 14,25 %. Beiðni um lán þarf að berast alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 19. júní 2007. Hægt er að senda inn beiðni með símbréfi á nr. 569 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/71). Um framkvæmd og frágang viðskipta vísast að öðru leyti til reglna um viðskipti lánastofnana við Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður um heildarfjárhæð viðskipta kl. 13:00 þriðjudaginn 19. júní 2007. Seðlabanki Íslands býður einnig lánastofnunum innstæðubréf til 8 daga þriðjudaginn 19. júní 2007 kl. 14:30 e.h. Hægt er að senda inn beiðni með símbréfi á nr. 569- 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/671). Ávöxtunarkrafa innstæðubréfa er 14,10%. Heildarfjárhæð innstæðubréfa verður tilkynnt kl. 15:00 þriðjudaginn 19. júní 2007.
- Tilkynning um regluleg viðskipti við Seðlabanki Íslands
| Source: Seðlabanki Íslands