- Vodafone semur um samnýtingu farsímakerfa við Nova ehf.


Og fjarskipti ehf. (Vodafone), dótturfélag Teymis hf., hefur samið við Nova
ehf. um samnýtingu farsímakerfa.  Samningurinn felur í sér að Vodafone fær
aðgang að nýju dreifikerfi Nova fyrir þriðju kynslóð farsíma (3G) og Nova fær
aðgang að GSM farsímakerfi Vodafone. 

Stjórnir Og fjarskipta ehf. og Nova ehf. telja að samningurinn feli í sér
verulegt hagræði fyrir bæði félögin.  Samkomulagið er í samræmi við
útboðslýsingu Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir 3G tíðniheimildir sem veitir
rétthöfum svigrúm til samnýtingar á dreifikerfum. 

Og fjarskipti (Vodafone) er fjarskiptafyrirtæki í eigu Teymis hf. Starfsmenn
Vodafone eru um 350 talsins og þjónusta viðskiptavini á heimilum og hjá
fyrirtækjum um land allt með farsíma, síma, nettengingar og sjónvarp.  GSM
þjónusta Vodafone nær til 98% landsmanna og með samstarfi við Vodafone Group,
eitt öflugasta fjarskiptafyrirtæki í heimi, er viðskiptavinum Vodafone tryggð
örugg farsímaþjónusta um allan heim. 
 
Nánari upplýsingar veitir:
Dóra Sif Tynes, hdl. 
Framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Teymis
Sími:  595 5000
GlobeNewswire