2007


Hagnaður Skipta hf. 2,4 milljarðar á fyrri árshelmingi 2007

   • Skipti hf. er eignarhaldsfélag um rekstur Símans og tengdra félaga.

   • Salan jókst um 3,8 milljarða króna á milli ára eða um 32%.

   • Hagnaður á fyrri helmingi ársins var 2,4 milljarðar króna samanborið við
     6,4 milljarða króna neikvæða afkomu fyrir sama tímabil árið 2006. 

   • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) er 4,3
     milljarðar króna. 

   • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 4,3 milljörðum króna.

   • Styrking krónunnar hefur haft mjög jákvæð áhrif á rekstur félagsins þar sem
     nokkuð stór hluti lána þess er í erlendri mynt. 

   • Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 34,8%



Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans og Skipta hf.

“ Afkoma samstæðunnar er mjög góð hvort sem horft er til starfseminnar í
fjarskiptum eða upplýsingatækni. Skipti hefur á fyrstu sex mánuðum þessa árs
fylgt eftir stefnu sinni að efla starfsemina í upplýsingatæknigeiranum og hafa
kaup félagsins á Sensa og Sirius IT m.a. borið þess vitni. Horfurnar í rekstri
fyrir seinni hluta þessa árs eru góðar og undirbúningur fyrir skráningu Skipta
á markað fyrir lok þessa árs stendur nú yfir.” 



Rekstur

Salan á fyrri helming ársins 2007 nam 15.514 m.kr. samanborið við 11.754 m.kr.
árið áður, sem er 32% aukning. Þessi mikla hækkun skýrist að hluta til af
tekjum frá Aerofone, Sirius IT og Sensa sem eru ný fyrirtæki í samstæðunni. Auk
þess hefur sala á þjónustum Símans aukist í öllum þjónustuflokkum nema
talsímaþjónustunni. 

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) á fyrri helmingi ársins
nam 2.316 m.kr. og jókst um 17,8% frá sama tímabili 2006. 

Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir (EBITDA) var 4.317 m.kr., miðað
við 3.969 m.kr. fyrir árið áður. Það er aukning um 348 m.kr eða 8,7%. EBITDA
hlutfallið er nú 27,5% samanborið við 33,4% árið áður. Skipti hefur keypt
fyrirtæki í upplýsingatæknigeiranum en sá markaður skilar að jafnaði lægri
EBITDA hlutfalli en fyrirtæki í fjarskiptageiranum en á móti eru fjárfestingar
að jafnaði lægri í upplýsingatæknigeiranum. 

Afskriftir félagsins námu 2.001 m.kr. yfir tímabilið sem er nánast óbreytt frá
fyrra ári. 

Afkoma eftir skatta var jákvæð um 2.445 m.kr. sem er um 16% af tekjum,
samanborið við neikvæða afkomu upp á 6.407 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2006. 
Þessi viðsnúningur skýrist að mestu leyti af gengisþróun. Hluti skulda Símans
er í erlendri mynt og olli gengislækkun krónunnar á fyrri árshelmingi 2006
gengistapi sem nam 8.280 m.kr. Styrking krónunnar hefur nú snúið þessari þróun
við og skilað félaginu 1.974 m. kr. gengishagnaði fyrstu sex mánuði þessa árs. 



Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 4.330 m.kr. fyrir tímabilið en
var 4.262 m.kr. árið 2006. 

Fjárfestingar samstæðunnar í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 2.052
m.kr. á tímabilinu en námu 894 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2006. Aukninguna
má rekja til fjárfestingar í þriðju kynslóðar farsímakerfi sem Síminn hefur
hafið uppbyggingu á, ásamt fjárfestingar vegna þéttingar á GSM kerfinu á
þjóðvegi 1 og fjallvegum í kjölfar útboðs hjá Fjarskiptasjóði. 



Efnahagur

Heildareignir samstæðunnar námu 92.365 m.kr. 30. júní 2007 og jukust eignir um
3,9% á árinu eða 3.458 m.kr. 

Eigið fé félagsins nam 32.108 m.kr. í lok fyrri árshelmings 2007 og
eiginfjárhlutfall var 34,8%. 



Dótturfélög

Helstu dótturfélög sem eru innifalin í samstæðureikningi Skipta eru: Síminn
hf., Míla ehf., Anza hf., Upplýsingaveitur ehf., Skjárinn ehf., Tæknivörur
ehf., Sensa ehf., Radíómiðun ehf., On-Waves og Sirius IT. 



Helstu atburðir á árshelmingnum

  • Á aðalfundi Símans hf. þann 15. mars sl. var samþykkt að skipta Símanum upp
    í Skipti hf., Mílu ehf. sem á og rekur grunnnetið, Fasteignafélagið Jörfa
    ehf. sem sér um rekstur fjárfestinga sem áður voru í eigu Símans og Símann
    hf. Skipti hf. varð móðurfélag hinna félaganna.  Eftir þessi skipti átti
    Skipti hf. 95% hlut í Símanum, Mílu og Jörfa.  Á síðustu vikum hefur Skipti
    aukið hlut sinn í öllum þremur félögunum og stendur eignahlutur Skipta nú í
    99,9% í öllum félögunum. 

  • Í mars var breska farsímafyrirtækið Aerofone keypt. Markmiðið var að efla
    enn frekar þjónustu við viðskiptavini Símans á fyrirtækjamarkaði í
    Bretlandi. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í sölu á farsímaþjónustu til
    lítilla og meðalstórra fyrirtækja og fellur starfsemin því afar vel að
    starfsemi Símans sem getur nú boðið viðskiptavinum sínum á Bretlandseyjum
    alla fjarskiptaþjónustu. 

  • Í apríl keypti Síminn öll hlutabréfin í upplýsingatæknifyrirtækinu Sensa.
    Stefna Símans hefur verið að auka sérhæfða ráðgjöf og innleiðingu
    samskiptalausna og eru kaupin á Sensa liður í þeirri stefnu. Sensa er eina
    fyrirtækið á Íslandi sem hefur hlotið gullvottun frá Cisco Systems (Gold
    Certified Partner) fyrir þekkingu sína á IP netlausnum frá Cisco. 

  • Í maí var tæplega helmingur hlutabréfa Símans í Tæknivörum ehf. selt. 

  • Í lok maí var tilkynnt að Anza hf. myndi sameinast Símanum frá og með 1.
    júlí. Með sameiningunni er horft til samlegðaráhrifa og þess markmiðs að ná
    fram auknum styrk á sviði þjónustu, ráðgjafar og sölu til viðskiptavina á
    fyrirtækjamarkaði. 

  • Rekstrarfélagið Skjá miðlar ehf. var stofnað í júní um rekstur
    Upplýsingaveitunnar Já og Skjásins. 



Markaðsstaða og horfur

Markaðsstaða dótturfélaga Skipta er mjög sterk bæði í fjarskipta- og
upplýsingatæknihlutanum og horfur góðar fyrir seinnihluta rekstrarársins.
Fyrirhugað er að skrá Skipti hf. á markað í haust eða í síðasta lagi fyrir lok
þessa árs og er undirbúningur fyrir það ferli vel á veg kominn. 

Uppbygging á þriðju kynslóðar farsímakerfi (3G) er komin á fullt skrið og
stefnt er að því að opna fyrir þjónustu inn á kerfið á höfuðborgarsvæðinu í
haust. Helsta breytingin með tilkomu 3G felst í auknum gagnaflutningshraða en
3G kerfi Símans mun frá upphafi bjóða upp á niðurhal allt að 7,2 Mbit/s sem er
með því allra besta sem býðst í dag. 3G tæknin gerir viðskiptavinum Símans
kleift að vafra á Internetinu, senda og fá til sín gögn, hreyfimyndir og
ljósmyndir á allt að tíföldum hraða frá því sem þekkist í núverandi GPRS kerfi.
Yfir 5000 3G símtæki eru nú þegar í umferð á núverandi GSM kerfi Símans og má
því búast við að viðbrögð markaðar verði góð frá upphafi. 

Einnig er hafin undirbúningur fyrir uppbyggingu á langdrægu og stafrænu
farsímakerfi sem mun leysa NMT farsímakerfið af hólmi. Framkvæmdir munu þó fara
að mestu leiti fram á næsta ári en fyrirhugað er að kerfið verði komið í fulla
þjónustu um áramótin 2008-2009 þegar NMT kerfinu verður lokað. 

Í janúar síðastliðnum hóf Síminn svokallað þjóðvegaverkefni í kjölfar útboðs
frá Fjarskiptasjóði, sem felst í þéttingu á GSM kerfinu á hringvegi landsins og
fimm fjölförnum fjallvegum. Heildar kílómetrafjöldinn sem áætlað er að koma í
betra GSM samband er yfir 500 km. Áætlað er að verkinu muni ljúka í janúar
2008. 

Starfsmenn Skipta vinna um þessar mundir að undirbúningi þess að opna
starfsstöð í Kaupmannahöfn þar sem markmiðið er að styðja við og efla starfsemi
og vaxtartækifæri Sirius IT í Skandinaviu. 

Síminn og 365 miðlar hafa náð samkomulagi um að Sjónvarp Símans dreifi Enska
boltanum á Sýn2 með háskerpumerki. Stefnt er að því að háskerpu útsendingar
geti hafist í október. Einnig hafa félögin lýst yfir vilja um samstarf á
aðgengi að sjónvarpsþáttum úr opinni og læstri dagskrá Stöðvar 2, í gegnum
sjónvarp Símans. Í dag eru 25% heimila í landinu með Sjónvarpsþjónustu Símans. 



Frekari upplýsingar veita: 
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta og Símans, sími 550 6003 
Linda Waage, upplýsingafulltrúi Skipta og Símans, sími 892 6011.

Pièces jointes

skipti - lykiltolur.pdf uppgjor 30.06.2007 skipti.pdf
GlobeNewswire