Helstu niðurstöður fyrir annan ársfjórðung • Sala var 88 milljónir Bandaríkjadala (5,6 milljarðar íslenskra króna*), jókst um 34% frá öðrum fjórðungi 2006 • Söluaukning vegna innri vaxtar var 8% • Pro forma söluaukning var 7% • Hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) var 17,4 milljónir dala (110,4 milljónir íslenskra króna*), jókst um 32% frá öðrum ársfjórðungi 2006 • EBITDA hlutfall var 19,7%, samanborið við 20,1% fyrir sama tímabil í fyrra • Hagnaður tímabilsins var 1,5 milljónir Bandaríkjadala (94,4 milljónir íslenskra króna*) samanborið við 2,1 milljón Bandaríkjadala á öðrum fjórðungi 2006. Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins • Sala var 168,4 milljónir Bandaríkjadala (11.1 milljarður íslenskra króna*), jókst um 34% frá öðrum fjórðungi 2006 • Söluaukning vegna innri vaxtar var 6% • Pro forma söluaukning var 7% • Hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) var 27,6 milljónir dala (1,8 milljónir íslenskra króna*), jókst um 27% frá sama tímabili 2006 • EBITDA hlutfall var 16,4%, samanborið við 17,3% fyrir sama tímabil í fyrra • Tap tímabilsins var 1,2 milljónir Bandaríkjadala (81.8 milljónir íslenskra króna*) samanborið við 2,7 milljón dala hagnað fyrir sama tímabil 2006. Jón Sigurðsson, forstjóri: „Við sjáum skýr merki um viðsnúning í Evrópu á meðan það er tímabundinn samdráttur í Bandaríkjunum vegna umfangsmikillar endurskipulagningar á sölukerfi fyrir spelkur og stuðningsvörur. Umbreytingin á sölukerfinu í Bandaríkjunum er lokaáfanginn í samþættingu á stuðningstækjafyrirtækjunum, sem keypt hafa verið í Norður- Ameríku, inn í sterka samstæðu Össurar. Við erum bjartsýn á að breytingarnar muni skila verulega jákvæðum áhrifum á næstu fjórðungum. Sala á stoðtækjum gengur vel og er í takt við markmið fyrirtækisins um 8-12% vöxt. Hátæknivörur Össurar halda áfram að fá verðskuldaða athygli í fjölmiðlum sem og hjá fagfólki og notendum.” * Samkvæmt reikningsskilareglum miðast umreikningur rekstrarliða milli gjaldmiðla við meðalgengi rekstrartímabils. Við umreikning úr Bandaríkjadölum yfir í íslenskar krónur fyrir fyrsta ársfjórðung er notað meðalgengi 63,63 ISK/USD. Við umreikning efnahagsliða er notað gengi í lok ársfjórðungsins 62,24 ISK/USD.