2007


Besta afkoma á fyrri hluta árs í sögu FL Group
23,1 milljarðs króna hagnaður eftir skatta
Aukning um 304% miðað fyrri hluta árs 2006


Helstu fjárhagstölur

-  Hagnaður eftir skatta 23,1 milljarður króna á fyrstu sex mánuðum ársins,
   hagnaður á öðrum ársfjórðungi rúmir 8 milljarðar 

-  Hagnaður eykst um 304% miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2006

-  Heildareignir aukast  um 56,7 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins og námu
   þær 319,6 milljörðum í lok annars ársfjórðungs 

-  Eigið fé eykst um 6,8 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins og er 149
   milljarðar í lok júní 2007 

-  Arðsemi eigin fjár var 22% á öðrum ársfjórðungi og 32% á fyrri hluta ársins
   á ársgrundvelli 

-  Fjárhagsstaða félagsins er áfram sterk, eiginfjárhlutfall er 47%


Helstu viðburðir

-  Refresco lauk fjórðu yfirtöku sinni á árinu á öðrum ársfjórðungi og er nú
   það stærsta sinnar tegundar í Evrópu eins og áætlanir gerðu ráð fyrir 

-  Undirritun 28 milljarða króna lánssamnings til þriggja ára við Morgan
   Stanley til fjármögnunar á hlutabréfaeign FL Group í Glitni banka 

-  Geysir Green Energy eignast 32% hlut í Hitaveitu Suðurnesja og 100% hlut í
   Jarðborunum hf. 

-  Markaðsviðskiptasvið félagsins (Capital Markets unit) tók til starfa á öðrum
   ársfjórðungi, en sviðið hefur umsjón með skammtímafjárfestingum og
   afleiðuviðskiptum 

-  50 milljóna dala fjárfesting í fjórum fasteignaverkefnum í Bandaríkjunum í
   samstarfi við fasteignafélagið Bayrock Group. Einnig tilkynnt um fyrsta
   samstarfsverkefni Bayrock Group og FL Group, kaup á hlut í “Midtown Miami”
   þróunarverkefninu 


Hannes Smárason, forstjóri FL Group segir:

„Við erum stolt af þeim öfluga vexti sem einkennt hefur rekstur FL Group á
öðrum ársfjórðungi 2007. Hagnaður þrefaldast, miðað við fyrstu sex mánuði
ársins 2006, eignir aukast um 24% frá árslokum 2006 og fjárhagsstaða félagsins
er áfram sterk.  Þetta þýðir að FL Group hefur því aukið umtalsvert við
fjárfestingagetu sína og leit að spennandi tækifærum þvert á atvinnugreinar og
landamæri.er í fullum gangi. 

Auk þess að styrkja stöðu félagsins í núverandi fjárfestingum hefur FL Group
hafið innreið sína á orkumarkaðinum fjárfestingu sinni í Geysi Green Energy,
fyrsta félaginu í einkaeigu til að eignast umtalsverðan hlut í almenningsveitu
á Íslandi.  Þetta verður mjög mikilvægt svið fyrir fyrirtækið þegar fram líða
stundir og býður upp á mikil alþjóðleg umsvif. 

Þrátt fyrir góða niðurstöðu á fyrstu sex mánuðum ársins 2007 mun FL Group áfram
kappkosta að bæta afkomu sína.  Þetta er metnaðarfullt markmið en við trúum því
að það sé raunhæft og við álítum félagið vel undir það búið að færa sér í nyt
þau tækifæri sem bjóðast.” 

Um hlutverk FL Group í Glitni segir Hannes: „FL Group mun halda áfram að vinna
að málum Glitnis og hefur enn og aftur á fyrri helmingi ársins ítrekað stuðning
sinn við bankann.  FL Group er stærsti hluthafinn í Glitni og á þeim forsendum
mun fyrirtækið áfram taka virkan þátt í að móta framtíð bankans.” 

Um Refresco segir Hannes Smárason:  „Uppbygging Refresco er gott dæmi um það
afl sem í FL Group býr.  Á þeim 14 mánuðum sem liðnir eru frá því FL Group,
ásamt öðrum fjárfestum og stjórnendateymi Refresco, eignuðust fyrirtækið hefur
það vaxið hratt og vel með yfirtökum til samræmis við þá stefnu sem eigendur
hafa mótað. Refresco er nú stærsta félag Evrópu á sínu sviði og hefur tvöfaldað
tekjur sínar á innan við ári.  Það hefur náð fótfestu á mikilvægum mörkuðum og
markmiðið er að efla og auka enn frekar við starfsemi félagsins.” 
 


Fyrirspurnir:

FL Group
Hannes Smárason 			Kristján Kristjánsson
Forstjóri				Forstöðumaður upplýsingasviðs 	
Sími: 591 4400 			Simi: 591 4427 / 899 9352

Sveinbjörn Indriðason 
Fjármálastjóri
Sími: 591 4400



Um FL Group 

FL Group er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem sérhæfir sig annars vegar í
áhrifafjárfestingum og umbreytingar¬verkefnum þar sem áhersla er lögð á
langtíma fjárfestingar í skráðum og óskráðum félögum og hins vegar í
markaðsviðskiptum sem lúta að umsjón með skammtíma fjárfestingum sem og
framkvæmd afleiðu- og verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins. 

Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en fyrirtækið rekur einnig  skrifstofur í
London og Kaupmannahöfn. Það fjárfestir í félögum um allan heim með sérstaka
áherslu á Evrópu.  FL Group er skráð í Kauphöll Íslands (OMX: FL). Við lok
annars ársfjórðungs námu heildareignir félagsins 319,6 milljörðum króna og
markaðsvirði félagsins var 234,4 milljarðar. 

Stærstu hluthafar FL Group eru Gnúpur fjárfestingafélag hf. (20,2%), Oddaflug
BV. (19,8%), félag í eigu Hannesar Smárasonar, forstjóra, Baugur Group (19,6%),
Icon and Materia Invest (10,7%).  Eignahlutar geta í sumum tilfellum verið
skráðir á íslenskar fjármálastofnanir vegna framvirkra samninga.  Frekari
upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is.

Pièces jointes

fl group - consolidated interim financial statements q2 2007.pdf fl group - frettatilkynning q2 2007.pdf
GlobeNewswire