Samhliða endurfjármögnunar á eignarhluta Kjalars hf. í Alfesca hf. hefur verið ákveðið að færa alla eignarhluti Mundills ehf. í Alfesca hf., samtals 85.675.910 hlutir og alla eignarhluti Kjalar Investment S.A. í Alfesca hf., samtals 138.888.889 hlutir, til Kjalar Invest B.V. Eftir yfirfærsluna mun Kjalar Invest B.V. eiga samtals 2.330.724.395 hluti í Alfesca hf., eða 39,6%. Mundill ehf., Kjalar Investment S.A. og Kjalar Invest B.V. eru öll í 100% eigu Kjalar hf. Raunverulegt eignarhald á bréfunum í Alfesca hf. mun því ekki hafa breyst við yfirfærslurnar. Kjalar hf. er 94,17% í eigu Ólafs Ólafssonar og 5,83% í eigu annarra fjárfesta. Ólafur Ólafsson er stjórnarformaður Alfesca hf. og eru umrædd félög þar af leiðandi öll fjárhagslega tengd honum. Eftir yfirfærslurnar munu félög fjárhagslega tengd Ólafi Ólafssyni, eftir sem áður, eiga 2.330.724.395 hluti í Alfesca hf. eða 39,6%.