Skipti hf., móðurfélag Símans skilar 3,3 milljarða króna hagnaði fyrstu 9 mánuði ársins 2007 - viðsnúningur upp á 6,4 ma kr. frá sama tímabili 2006 • Salan jókst um 6 milljarða króna á milli ára eða um 33%. • Hagnaður fyrstu níu mánuði ársins var 3,3 milljarðar króna samanborið við 3,1 milljarða króna neikvæða afkomu fyrir sama tímabil árið 2006. • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) er 7,0 milljarðar króna eða 29%. • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 7,0 milljörðum króna. • Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 35% • Fjarskiptafyrirtækið Business Phone í Danmörku var keypt í ágúst • Skipti hefur samþykkt kauptilboð í Fasteignafélagið Jörfa ehf. frá Exista Properties og nemur söluhagnaðurinn 1,3 milljörðum króna eftir skatta Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans og Skipta hf. “ Afkoma samstæðunnar er mjög góð hvort sem horft er til starfseminnar í fjarskiptum eða upplýsingatækni. Skipti heldur áfram að fylgja þeirri stefnu að efla starfsemina erlendis. Kaup félagsins á danska fjarskiptafyrirtækinu Business Phone í ágúst síðastliðinum eru liður í þeirri stefnu. Auk þessa hefur Skipti gert óbindandi kauptilboð í 49% hlut í slóvenska símafyrirtækinu Telecom Slovenije. Horfur í rekstri fyrir fjórða ársfjórðung þessa árs eru góðar. Skipti hefur samþykkt kauptilboð í Fasteignafélagið Jörfa ehf. frá Exista Properties og nemur söluhagnaðurinn 1,3 milljörðum króna eftir skatta. Undirbúningur fyrir skráningu Skipta á markað gengur vel og er stefnt að skráningu fyrir árslok.” Um Skipti hf. Skipti hf. er eignarhaldsfélag um rekstur fyrirtækja á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingar. Innan samstæðunnar eru Síminn, Míla, Já, Skjárinn, Sensa, Tæknivörur, On-Waves og Radiomiðun. Erlend dótturfélög eru fjarskiptafélögin Aerofone í Bretlandi, BusinessPhone í Danmörku, og upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Nánari upplýsingar veitir: Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Sími 550-6003 Linda Waage, forstöðumaður samskiptasviðs Sími 892-6011