Nordic Exchange býður East Capital Explorer velkomið - nýjan fjárfestingarkost


Í dag hefjast viðskipti með hlutabréf East Capital Explorer's í OMX Nordic
Exchange í Stokkhólmi en það er þrítugasta og þriðja félagið sem er skráð á
aðalmarkað Nordic Exchange á þessu ári. 
East Capital Explorer AB er sænskt félag sem var stofnað nýlega og mun veita
okkar breiða hópi fjárfesta einstök fjárfestingartækifæri í Austur-Evrópu.
Félagið mun einbeita sér að fjárfestingum í óskráðum félögum og félögum sem eru
að hluta til á markaði ört vaxandi atvinnugeira í Austur-Evrópu og hafa fengið
East Capital til að annast fjárfestingarstarfsemi sína. 
„Á þessu ári höfum við getað fjölgað mjög nýjum fjárfestingarkostum í Nordic
Exchange og enn fleiri eru að bætast við. Sem dæmi má nefna East Capital
Explorer, meðalstórt félag sem í dag verður tekið til viðskipta á
aðalmarkaðnum. Með því fær Nordic Exchange til sín félag af nýrri gerð sem
einnig er dæmi um þann áhuga sem vaknaður er á nýmörkuðum. Sem önnur dæmi má
nefna FirstFarms á aðalmarkaðnum og Trigon Agri og EOS Russia á First North,“
segir Jenny Rosberg, forstjóri OMX Company Services. 

Viðskiptalota hlutabréfa East Capital Explorer AB, sem hefur auðkennið ECEX, er
100. Félagið flokkast með meðalstórum félögum í fjármálageiranum. 

Nánari upplýsingar veitir
Maria Andark, OMX  +46 8 405 73 74


UM OMX | OMX er leiðandi aðili í kauphallarviðskiptum. OMX Nordic Exchange nær
til yfir 800 félaga, þar með talinn hliðarmarkaðinn First North. OMX þróar
upplýsingatæknikerfi fyrir rúmlega 60 kauphallir, greiðslustofnanir og
verðbréfamiðstöðvar í rúmlega 50 löndum. Nordic Exchange er ekki lögaðili en
hugtakið lýsir sameiginlegri þjónustu kauphallanna í Helsinki, Kaupmannahöfn,
Stokkhólmi, Íslandi, Tallinn, Ríga og Vilníus. OMX er í fjármálageira og er
flokkað með stórum félögum í OMX Nordic Exchange (e. Nordic Large Cap). Nánari
upplýsingar er að finna á slóðinni www.omxgroup.com.

Pièces jointes

071109_east_capital_explorer_ice.pdf
GlobeNewswire