Hagnaður samstæðu 27,7 milljarðar króna eftir skatta
Arðsemi eigin fjár 19,3%
Helstu niðurstöður:
* Hreinar rekstrartekjur jukust um 17,2% milli ára
* Hagnaður fyrir skatta á fjórða ársfjórðungi nam 3,8 milljörðum
króna miðað við 10,4 milljarða á þriðja ársfjórðungi
* Hreinar vaxtatekjur á fjórða ársfjórðungi voru 11,9 milljarðar
og hækkuðu um 54,6% frá fjórða ársfjórðungi 2006
* Þóknanatekjur á fjórða ársfjórðungi ársins námu 10,6 milljörðum
og jukust lítillega frá sama ársfjórðungi í fyrra
* 52% af hagnaði bankans fyrir skatta á árinu 2007 myndaðist af
starfsemi utan Íslands
* Hagnaður á hlut var 0,19 krónur á fjórðungnum og 1,86 krónur
yfir árið samanborið við 2,68 krónur í fyrra
* Heildareignir voru 2.949 milljarðar en voru 2.246 milljarðar í
ársbyrjun 2007
* Eignir í stýringu drógust saman um 6,7% frá fyrri ársfjórðungi,
vegna sölu hlutar bankans í Glitnir Property Holding, en
heildarvöxtur yfir árið nam 91% og eru nú 936 milljarðar króna
* Eiginfjárhlutfall á CAD grunni var 11,2 %, þar af A-hlutfall
8,1 %
Tíðindi af tímabilinu
* Tekjur af kjarnastarfsemi traustar, jukust um 36% á milli ára
* Glitnir hefur skipað sér í fremstu röð á sviði
hlutabréfamiðlunar á Norðurlöndunum
* Óhagstæðar markaðsaðstæður hafa neikvæð áhrif á afkomuna á 4
ársfjórðungi
* Kostnaðarhlutföll yfir ásættanlegum mörkum, má rekja að hluta
til einskiptiskostnaðar sem fellur til á 4. ársfjórðungi
* Traust lausfjárstaða við erfiðar markaðsaðstæður
* Aukin alþjóðlegur vöxtur byggður á sérþekkingu
Lárus Welding, forstjóri Glitnis. "Þegar ég lít yfir afkomutölurnar
er ánægjulegt að sjá svo góðan vöxt í hreinum vaxta- og þóknanatekjum
eins og raun ber vitni. Þóknanatekjur bankans voru stöðugar á árinu
og námu samtals um 37,6 milljörðum króna, sem er um 42% aukning frá
árinu áður. Ég er einnig ánægður að sjá tekjur af kjarnastarfsemi
bankans vaxa á nýjan leik þar sem vöxturinn nam um 21% á
ársgrundvelli auk þess sem traust útlánasafn bankans tryggir okkur
góðar vaxtatekjur á þessu ári.""Markaðssyllur Glitnis, sjávaraútvegur, jarðhiti og þjónustuskip við
olíuiðnaðinn hafa vaxið sem hluti af lánabók bankans, eða úr 11% árið
2006 í 13% 2007. Með því að byggja upp sérþekkingu á þessum þremur
sviðum erum við í raun að fjárfesta í framtíðarvexti bankans. Þá
hefur Glitnir einnig skipað sér í fremstu röð á sviði
hlutabréfamiðlunar á Norðurlöndunum.""Á árinu 2007 hefur Glitnir fjárfest í ytri og innri vexti og
endurspeglast sá vöxtur m.a. í auknum kostnaði í tengslum við
samþættingarverkefni, opnun nýrra starfsstöðva auk kostnaðar sem féll
til vegna stjórnendaskipta. Við höfum hinsvegar nú gert
skipulagsbreytingar sem miða að því að auka hagkvæmni og
kostnaðaraðhald og gera rekstarábyrgð, ákvarðanatöku og boðleiðir
skýrari undir forystu stjórnenda á hverju markaðssvæði fyrir sig.""Markaðsaðstæður síðustu mánaða hafa verið öllum fjármálafyrirtækjum
erfiðar. Glitnir er hins vegar í góðri stöðu til að takast á við
núverandi aðstæður með yfir 6 milljarða evra í lausafé og sterkan
undirliggjandi tekjugrunn. Lánasafnið okkar er áhættudreift og byggt
á traustum og góðum eignum.""Ég er þess fullviss að þessar áherslur í stefnu Glitnis skapa okkur
nauðsynlegar undirstöður fyrir frekari vöxt á öllum afkomusviðum
bankans", sagði Lárus Welding.
Nánari upplýsingar veita:
Lárus Welding
Forstjóri
sími: 440 4005
Alexander K. Guðmundsson
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
sími: 440 4656
Vala Pálsdóttir
Forstöðumaður fjárfestatengsla
sími: 440 4989 eða vp@glitnir.is
Reikninga Glitnis er að finna á slóðinni www.glitnir.is.
Afkoma Glitnis banka fyrir árið 2007
| Source: Glitnir banki hf.