Niðurstöður aðalfundar Glitnis banka hf. sem haldinn var 20. febrúar 2008


Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á aðalfundi Glitnis banka hf. sem haldinn
var 20 febrúar 2008: 
Tillaga stjórnar um ráðstöfun hagnaðar og greiðslu arðs
„Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir að af hagnaði rekstrarársins 2007 eftir
skatta, sem nam 27,651 milljörðum króna, skuli greiða 5,506 milljarða króna í
arð til hluthafa í samræmi við hlutafjáreign þeirra eða sem nemur 19,9% af
hagnaði ársins 2007 og 37% af útgefnu hlutafé.  Gjalddagi arðgreiðslu verði 20.
febrúar 2008, en vaxtalaus útgreiðsla arðs af hálfu félagsins fari fram 13.
mars 2008.  Því sem eftir stendur af hagnaði ársins skal ráðstafað til hækkunar
á eigin fé Glitnis banka hf. 

Jafnframt samþykkir aðalfundur að hluthöfum skuli gefinn kostur á að fá allt að
helming arðs síns greiddan í hlutafé í Glitni banka hf. á verðinu 17,10 per
hlut. ” 
Tillaga stjórnar um endurskoðanda
Aðalfundur Glitnis banka hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf. endurskoðunarfélag
félagsins. 
Breytingartillaga um þóknun stjórnarmanna 
„Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir að þóknun til hvers stjórnarmanns verði
kr. 250.000 á mánuði, þóknun varaformanns stjórnar verði kr. 350.000 á mánuði
og þóknun til formanns stjórnar verði kr. 550.000 á mánuði.  Þóknun varamanna í
stjórn verði kr. 75.000 fyrir hvern setinn fund.  Þóknun stjórnarmanna fyrir
setu í undirnefndum verði kr. 75.000 á mánuði en þóknun formanns í hverri
undirnefnd verði kr. 150.000 á mánuði.” 
Tillaga stjórnar um framlag í Menningarsjóð Glitnis
Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir að framlag í Menningarsjóð Glitnis verði
200 milljónir króna á árinu 2008. 
Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum í Glitni banka hf. 
Aðalfundur Glitnis banka hf. veitir stjórn heimild til þess að kaupa eigin
hluti í félaginu eða taka þá að veði.  Heimild þessi standi í 18 mánuði og
takmarkist við að samanlögð kaup og veðsetning hluta fari ekki yfir 10% af
heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.  Kaupverð hluta skal vera lægst 10%
lægra og hæst 10% hærra en skráð kaup- eða sölugengi í Kauphöll Íslands. 


Jafnframt fellur niður samhljóða heimild aðalfundar frá 20. febrúar 2007.


Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir eftirfarandi starfskjarastefnu fyrir
forstjóra og stjórnendur bankans: 

„Starfskjarastefna Glitnis banka hf.  skv. 79. gr. a laga nr. 2/1995 um
hlutafélög. 

Starfskjarastefna Glitnis banka hf. miðar að því að Glitnir banki hf. og
dótturfélög hans séu samkeppnishæf og aðlaðandi fyrir þann mannauð sem bankinn
þarf að hafa til að ná árangri á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. 
Starfskjarastefnan nær yfir helstu grundvallaratriði í starfs- og launakjörum
forstjóra og stjórnenda bankans.  Starfskjör stjórnarmanna skulu ákveðin á
aðalfundi félagsins fyrir komandi starfsár. 

Til viðbótar við föst laun er heimilt að veita, forstjóra og stjórnendum
kaupaukagreiðslur, starfsfríðindi og annan efnahagslegan ábata sem hér fer á
eftir (en er þó ekki tæmandi talinn): 

•	Árangurstengdar kaupaukagreiðslur sem miðast við árangur í rekstri á bankanum
í heild sinni eða einstökum sviðum eða deildum.  Einnig eru persónulegur
árangur og leiðtogahæfni höfð til viðmiðunar, ásamt því að taka tillit til þess
hvernig stjórnendur hafa haft gildi bankans að leiðarljósi.  Kaup- og
söluréttir á hlutabréfum í Glitni banka hf. og/eða dótturfélögum hans.  Gerð er
grein fyrir slíku í ársskýrslu félagsins.  Kaupréttir starfsmanna geta á
hverjum tíma numið allt að 5% af útgefnu hlutafé bankans. 
 
•	Glitnir banki hf. greiðir mótframlag til lífeyrissjóðs skv. lögum og
kjarasamningum í hverju því landi sem Glitnir banki hf. er með starfsemi. 
Heimilt er að gera sérsamninga við stjórnendur um aukaframlag í lífeyrissjóð. 

•	Bankinn leitast við að viðhalda og auka hæfni stjórnenda til að styðja við
áframhaldandi vöxt og viðgang félagsins. 

•	Greiðslur til stjórnenda við starfslok skulu að jafnaði einungis byggjast á
viðeigandi ráðningarsamningi.  Bankanum er þó heimilt við sérstakar aðstæður,
ef slík ráðstöfun er í þágu bankans, að gera sérstaka starfslokasamninga við
stjórnendur. 

Þessi starfskjarastefna er leiðbeinandi fyrir stjórn Glitnis banka hf. mæli lög
ekki fyrir um annað og tekur í aðalatriðum til þeirra þátta er nefndir eru hér
að ofan, án þess þó að takmarkast af þeim.  Stjórn Glitnis banka hf. mun skoða
og taka afstöðu til allra þátta og atriða er varða starfs- og launakjör
forstjóra og stjórnenda bankans og dótturfélaga hans eftir því sem tilefni
gefst til. 

Tillaga stjórnar til breytinga á samþykktum félagsins: 
Aðalfundur Glitnis banka hf. samþykkir neðangreindar breytingar á samþykktum
félagsins: 
Að 4. gr. samþykkta félagsins verði breytt á þann veg að stjórn fái heimild til
að hækka hlutafé félagsins um allt að 4.200 milljónir króna, þar með talin
heimild til að gefa út allt að 200 milljónir króna í nýju hlutafé til að mæta
arðgreiðslum til hluthafa.  4. gr. orðist svo: 

“Hlutafé félagsins er kr. 14.880.701.303 - fjórtán milljarðar átta hundruð og
áttatíu milljónir sjö hundruð og eitt þúsund þrjú hundruð og þrjár krónur - og
skiptist í jafn marga hluti að fjárhæð 1 króna. 

Stjórn er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 1.500.000.000 -
eitt þúsund og fimm hundruð milljónir króna - með áskrift nýrra hluta. Stjórn
skal ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör hinna nýju hluta og í hvaða áföngum
heimildin verður nýtt.  Hluthafar skulu eiga forgangsrétt til að skrá sig fyrir
nýjum hlutum í félaginu í réttu hlutfalli við hlutafjáreign sína.  Stjórn getur
sett nánari reglur um sölu hlutanna. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar
samkvæmt þessari málsgrein fellur niður í árslok 2009 að því marki sem hún er
þá enn ónotuð. 

Stjórn er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 2.500.000.000 - tvö
þúsund og fimm hundruð milljónir króna - með áskrift nýrra hluta. Stjórn skal
ákvarða útboðsgengi og greiðslukjör hinna nýju hluta og í hvaða áföngum
heimildin verður nýtt.  Hluthafar hafa ekki forgangsrétt til áskriftar að hinum
nýju hlutum. Stjórn getur sett nánari reglur um sölu hlutanna. Heimild stjórnar
til hlutafjárhækkunar samkvæmt þessari málsgrein fellur niður í árslok 2009 að
því marki sem hún er þá enn ónotuð. 

Stjórn er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 200.000.000 - tvö
hundruð  milljónir króna - til að mæta arðgreiðslum til hluthafa í formi
hlutafjár vegna rekstrarársins 2007.” 

Eftirtaldir aðilar voru sjálfkjörnir sem aðal- og varamenn í stjórn Glitnis
banka hf. 
Aðalmenn:
Björn Ingi Sveinsson, kt. 261151-2359, Kelduhvammi 12b, 220 Hafnarfirði, Ísland
Hans Kristian Hustad, kt. 300549-2339, Noregi
Jón Sigurðsson, kt. 180378-4219, Unnarbraut 17, 170 Seltjarnarnes, Ísland
Kristinn Þór Geirsson, kt. 270766-4989, Mánalind 4, 201 Kópavogi, Ísland
Kristín Edwald, kt. 150471-5329, Ægisíðu 56, 107 Reykjavík, Ísland
Sigurður G. Guðjónsson, kt. 081151-3189, Brekkugötu 2, 470 Þingeyri, Ísland
Þorsteinn Már Baldvinsson, kt. 071052-4359, Barðstúni 7, 600 Akureyri, Ísland

Varamenn:  
Árni Harðarson, kt. 050866-5569, Bergstaðarstræti 49, 101 Reykjavík, Ísland
Bernhard Nils Bogason, kt. 060763-2169, Sæbólsbraut 3, 200 Kópavogur, Ísland
Gunnar Jónsson, kt. 071260-3219, Hólahjalla 12, 200 Kópavogur, Ísland
Haukur Guðjónsson, kt. 201066-8249, Melgerði 12, 108 Reykjavík, Ísland
Jón Björnsson, kt. 160166-5769, Austurbyggð 14, 600 Akureyri, Ísland
Kristinn Bjarnason, kt. 240364-2209, Álfabergi 8, 220 Hafnarfirði, Ísland
Steingrímur Halldór Pétursson, kt. 160872-5439, Háhlíð 14, 603 Akureyri, Ísland


Að loknum aðalfundi hélt ný stjórn Glitnis banka hf. fund og skipti með sér
verkum. Þar var Þorsteinn Már Baldvinsson kjörinn formaður stjórnar og Jón
Sigurðsson varaformaður stjórnar. 
GlobeNewswire