S&P breytir horfum um lánshæfismat Glitnis



Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard  & Poor's tilkynnti  í dag að  það
hefði tekið lánshæfismat Glitnis til skoðunar með möguleika á lækkun.
S&P  staðfestir  lánshæfismat  langtíma-  og  skammtímaskuldbindinga.
Lánshæfismat Glitnis er nú: langtímaskuldbindingar eru metnar
A-, skammtímaskuldbindingar A-2.  Glitnir er eini  bankinn á  Íslandi
sem metinn er af S&P."Þessi afstaða S&P  kemur í sjálfu  sér ekki á  óvart í ljósi  þeirra
aðstæðna sem  nú  ríkja  á mörkuðum,"  segir  Ingvar  H.  Ragnarsson,
framkvæmdastjóri   fjárstýringar    Glitnis.   "Glitnir    er    eina
bankastofnunin   á    Íslandi   sem    er    metinn   af    S&P    en
lánshæfismatsfyrirtæki hafa almennt verið að endurskoða afstöðu  sína
til fjölmargra banka  í ljósi breyttra  markaðsaðstæðna. S&P  breytti
horfum nokkurra  af stærri  fjárfestingabönkum  heims úr  stöðugum  í
neikvæðar fyrir um  mánuði síðan. Við  munum vinna með  S&P og  kynna
bankann með það að markmiði  að tryggja núverandi lánshæfismat  hans,
og munum áfram hafa skuldabréfafjárfesta ofarlega í huga."

Tilkynning S&P er í meðfylgjandi viðhengi.

Nánari upplýsingar veita:
Ingvar H. Ragnarsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar, s. 844 4665 og
netfang: ingvar.ragnarsson@glitnir.is.

Vala Pálsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, í síma 844 4989, eða
netfang: vala.palsdottir@glitnir.is.

Már Másson, forstöðumaður kynningarmála, í síma 844 4990, eða
netfang:  mar.masson@glitnir.is

Pièces jointes

SP announcement
GlobeNewswire