Breytingar í stjórn og framkvæmdastjórn Glitnis



Reykjavík, 11. apríl 2008  Kristinn Þór Geirsson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Fjármála og- rekstrarsviðs Glitnis og mun taka sæti
í framkvæmdastjórn bankans.

Kristinn Þór var kosinn í stjórn Glitnis á aðalfundi bankans í
febrúar sl. en mun með ráðningunni ganga úr stjórn bankans.  Í hans
stað tekur Haukar Guðjónsson sæti í stjórn Glitnis.

Alexander K. Guðmundsson, starfar áfram sem framkvæmdastjóri áhættu-
og fjárstýringar Glitnis.

Kristinn Þór hefur mikla reynslu á sviði rekstrar og
fjármálastjórnunar. Hann tók nýlega við starfi forstjóra B&L, en áður
hafði hann gegnt stöðu stjórnaformanns félagsins.  Þá hefur Kristinn
m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Sunds ehf. og sem framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs Samskipa. Kristinn Þór er viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands og  MBA frá  Wharton Business School.


Nánari upplýsingar veita:
Már Másson, forstöðumaður kynningarmála, farsími: 844 4990,
mar.masson@glitnir.is
Vala Pálsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, farsími 844 4089,
vala.palsdottir@glitnir.is

Pièces jointes

Frettatilkynning PDF
GlobeNewswire