- Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir við yfirtöku Exista á Skiptum


Hinn 27. mars 2008 lagði Exista hf. fram yfirtökutilboð í öll hlutabréf Skipta
hf. Var yfirtökutilboðið háð því eina skilyrði að samkeppnisyfirvöld samþykktu
kaupin, væri samþykki þeirra á annað borð áskilið lögum samkvæmt. 
 
Í gær, 17. apríl 2008, tók Samkeppniseftirlitið þá ákvörðun að ekki væri
tilefni til að hafast frekar að varðandi kaup Exista hf. á öllu hlutafé í
Skiptum hf. Er ákvörðunina í heild sinni að finna á heimasíðu
Samkeppniseftirlitsins, http://www.samkeppni.is. 

Samkvæmt framansögðu hefur eina skilyrði yfirtökutilboðs Exista hf. verið
uppfyllt og er sérhvert samþykki við tilboðinu skuldbindandi og
óafturkallanlegt. 
GlobeNewswire