Hagnaður samstæðu 7,7 milljarðar króna fyrir skatta
Hagnaður færður yfir eigið fé 28,4 milljarðar króna fyrir skatta
Sterk lausafjárstaða 8.7 milljarður evra
Helstu niðurstöður:
* Hagnaður fyrir skatta á 1. ársfjórðungi nam 7,7 milljörðum króna,
aukning um 102% frá 4. ársfjórðungi 2007
* Hreinar rekstrartekjur hafa aldrei verið hærri, eða 25,6
milljarða króna og jukust um 29% frá síðasta ársfjórðungi
* Hreinar vaxtatekjur á 1. ársfjórðungi voru 13,8 milljarðar og
hækkuðu um 16% frá 4. ársfjórðungi 2007
* Þóknanatekjur á 1. ársfjórðungi ársins námu 10,6 milljörðum og
jukust lítillega frá síðasta ársfjórðungi
* Gjöld námu 13,8 milljörðum króna sem er 12% lækkun frá 4.
ársfjórðungi 2007
* Raunvöxtur lánasafns var 4% á fyrsta ársfjórðungi
* Lausafjárstaðan styrktist verulega og var 8,7 milljarðar evra í
lok 4. ársfjórðung
* Eiginfjárhlutfall á CAD grunni var 11,0%, þar af var A-hlutfall
7,7%
Tíðindi á tímabilinu
* Tekjur af kjarnastarfsemi eru traustar, jukust um 12,6% að
meðaltali (CQGR) frá 1. ársfjórðungi 2007
* Hagnaður af kjarnastarfsemi fyrir skatta[1] jókst um 46% milli
ársfjórðunga og um 21% milli ára
* Hlutfall kostnaðar af tekjum lækkaði niður í 54% úr 79% á síðasta
ársfjórðungi
* Góð afkoma markaðsviðskipta, fyrirtækja- og
fjárfestingabankasviða á 1. ársfjórðungi ársins
* Góð verkefnastaða framundan á sviði markaðssyllna og sölu og
skráningu fyrirtækja, 60% ráðgjafatekna á fjórðungnum tengdar
markaðssyllum
* Markaðsviðskipti á íslandi hagnast á sveiflum á gjaldeyris- ,
verðbréfa- og afleiðumörkuðum
* Glitnir er annar stærsti hlutabréfamiðlari á norrænum
hlutabréfamarkaði með 7,37% markaðshlutdeild
Lárus Welding, forstjóri Glitnis: "Afkoma Glitnis var mjög góð á
þessum fyrsta ársfjórðungi en hann einkenndist af mjög krefjandi
markaðsaðstæðum fyrir öll fjármálafyrirtæki. Þrátt fyrir umrót á
mörkuðum sýndi Glitnir innri styrk og staðfestir afkoman
undirliggjandi þanþol og sveigjanleika í rekstri bankans.
Hreinar rekstrartekjur okkar hafa aldrei verið hærri og það er
stöðugur vöxtur í kjarnastarfsemi. Skýr stefna á markaðssyllum okkar,
sjávarútvegi og jarðhita, hefur verið árangursrík og þar sem um 60%
af ráðgjafatekjum okkar tengjast þessum sviðum. Rekstrargjöld drógust
saman um 12% á milli fjórðunga sem er í samræmi við stefnu okkar um
aukið hagræði í rekstri bankans. Ennfremur hefur okkur tekist að
styrkja góða lausafjárstöðu og eiginfjárhlutföll við erfiðar ytri
aðstæður.
Allar fjármálastofnanir hafa þurft að hagræða í rekstri sínum á
síðustu misserum til að auka skilvirkni í starfsemi og auka arðsemi.
Við ætlum okkur að styrkja tekjuvöxt bankans enn frekar á öðrum
ársfjórðungi og standa vörð um lausafjárstöðu okkar og beita
áframhaldandi aðhald í rekstri."
[1] Hagnaður fyrir skatta og afskriftir - aðrar rekstrartekjur
Nánari upplýsingar
veita:
Lárus Welding Alexander K. Guðmundsson Vala Pálsdóttir
Forstjóri Framkvæmdastjóri Forstöðumaður
fjármálasviðs fjárfestatengsla
sími: 440 4005 sími: 440 4656 sími: 440 4989 eða
vp@glitnir.is
Reikninga Glitnis er að finna á slóðinni www.glitnir.is.
Afkoma Glitnis banka á 1. ársfjórðungi 2008
| Source: Glitnir banki hf.