- Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar


Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta vöxtum bankans
sem hér segir: Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka um 0,5
prósentur í 8,5%. Seðlabankinn mun áfram efna til útboða á innstæðubréfum til
28 daga með 9,75% hámarksvöxtum, en í því felst 0,5 prósentna lækkun
hámarksvaxta innstæðubréfa. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga verða
lækkaðir um 1 prósentu í 10% og daglánavextir um 1,5 prósentu í 11,5%. 
GlobeNewswire