Félög í meðfylgjandi viðhengi munu færast til á milli flokka eftir markaðsvirði þann 4. Janúar 2010. Félög tilheyra flokkum eftir markaðsvirði („Lítil“ = Small Cap, „Meðalstór“ = Mid Cap og „Stór“ = Large Cap) og er miðað við meðalmarkaðsvirði þeirra í mánuði endurskoðunar. Félög með markaðsvirði sem nemur 1 milljarði evra eða meira tilheyra „stórum“ félögum, á meðan félög með markaðsvirði sem nemur minna en 150 milljónum evra tilheyra „litlum“ félögum. Félög með markaðsvirði sem nemur 150 milljónum evra til eins milljarðs evra tilheyra „meðalstórum“ félögum. Næsta endurflokkun á félögum mun eiga sér stað í janúar 2011 og verður þá miðað við markaðsvirði félaga í nóvember 2010. Frekari upplýsingar gefur Kristín Rafnar skráningarsviði Kauphallarinnar, sími 525-2800 eða Corporate Client Group/Market Research, í síma + 46 8 405 60 00.