- Lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands staðfest


Lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands staðfest: Horfum breytt úr neikvæðum í stöðugar
eftir samþykkt Icesave-frumvarpsins
 
Hér fer á eftir lausleg þýðing á frétt frá Standard & Poor's:
Lánshæfismat Ríkissjóðs Íslands staðfest: Horfum breytt úr neikvæðum í stöðugar
eftir samþykkt Icesave-frumvarpsins 

• Alþingi hefur samþykkt Icesave-samninginn og mun það skref stuðla verulega að
  því að tryggja nauðsynlegt erlent fjármagn á árinu 2010. 
• Við höfum endurskoðað horfur okkar fyrir lánshæfismat ríkissjóðs í stöðugar
  úr neikvæðum. 
• Við staðfestum lánshæfiseinkunn okkar fyrir erlendar skuldbindingar
  „BBB-/A-3“ og lánshæfiseinkunn fyrir innlendar skuldbindingar „BBB+/A-2“. 
• Í stöðugum horfum vegast á erfiðleikar sakir hins háa skuldahlutfalls hins
  opinbera og viðkvæm ytri staða annars vegar og sannfæring okkar um að íslenska
  þjóðarbúið og stofnanir þess búi yfir þeim sveigjanleika sem þarf til að glíma
  við þessa erfiðleika hins vegar. 

Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s tilkynnti í dag, 31. desember 2009, að það
hefði breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands úr neikvæðum í stöðugar.
Á sama tíma staðfesti fyrirtækið einkunnir sínar fyrir skuldbindingar
ríkissjóðs til langs og skamms tíma, „BBB-/A-3“ fyrir erlendar skuldbindingar
og „BBB+/A-2“ fyrir innlendar skuldbindingar. BBB- matið fyrir skipti- og
breytanleika var einnig staðfest (e. transfer and convertibility assessment). 

Endurskoðunin á horfunum byggist á því að 30. desember 2009 samþykkti Alþingi
frumvarp um ríkisábyrgð fyrir láni frá hollenskum og breskum stjórnvöldum til
tryggingasjóðs innstæðueigenda. Með þessu láni uppfyllir Ísland skuldbindingar
sínar um að bæta eigendum Icesave-innstæðna í útibúum hins gjaldþrota
Landsbanka í Hollandi og Bretlandi. Við væntum þess að forseti Íslands muni
undirrita lögin þegar þar að kemur. 

„Þótt samþykkt Alþingis á Icesave-samningnum muni auka verulega á almenna
skuldabyrði ríkissjóðs er hún mikilvægt skref í þá átt að hægt verði að greiða
út allt að 2,3 milljarða evra lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og tvíhliða
lánin frá Norðurlöndunum,“ segir Moritz Kraemer sérfræðingur hjá Standard og
Poor´s. Þessir fjármunir munu styrkja lausafjárstöðu Íslands, sem er ennþá
veik, með því að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans (nú u.þ.b. 2,5
milljarðar evra). Með því að styrkja gjaldeyrisvarasjóðinn eru sköpuð skilyrði
til þess að mögulegt verði að losa um þau gjaldeyrishöft sem voru sett síðla í
nóvember 2008. 

Meðal annarra mikilvægra og jákvæðra tíðinda sem nefna má er að lokið hefur
verið við endurskipulagningu gjaldþrota banka og samþykkt hefur verið
aðhaldssamt fjárlagafrumvarp fyrir árið 2010, sem er stutt metnaðarfullri
aðhaldsáætlun næstu misserin í því skyni að koma halla ríkissjóðs sem nú nemur
um 13% af vergri landsframleiðslu (áætlaður 2009) aftur í jafnvægi árið 2013.
Þó að við teljum óvíst að þetta markmið náist gerum við ráð fyrir að áætlunin í
ríkisfjármálum haldi heildarskuldum ríkissjóðs innan við 130% af vergri
landsframleiðslu árið 2010, en eftir þann tíma álítum við að þær lækki smám
saman. Ef staðið verður við hina aðhaldssömu áætlun í ríkisfjármálum árið 2010
og næstu ár þar á eftir verður hámark hreinna skulda ríkissjóðs að okkar mati
áfram nálægt 100% af vergri landsframleiðslu. Þessar ályktanir byggjast á því
að það takist að losa um höft á fjármagnshreyfingar án þess að það leiði til
gengisfalls íslensku krónunnar að nýju, enda mundi það ekki aðeins leiða til
hækkunar erlendra skulda í íslenskum krónum talið, heldur einnig grafa undan
hagvexti í framtíðinni og þar með tekjuhorfum. Samþykkt hins óvinsæla
Icesave-samnings, sem hafði dregist mjög og olli miklum deilum á árinu 2009,
mun að okkar mati efla traust fjárfesta á getu stjórnvalda til að setja fram og
hrinda í framkvæmd heildstæðri stefnu og tryggja nauðsynlegt erlent fjármagn.
Þetta er einnig talið draga úr líkum þess að afnám gjaldeyrishafta fari úr
böndunum og ætti að breyttum breytanda að styðja við gengi krónunnar.
Endurfjármögnun bankanna lauk í desember 2009 og nam 13% af vergri
landsframleiðslu, en það var aðeins helmingur af þeim kostnaði fyrir ríkisjóð
sem upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Engu að síður eru skuldir sem
hugsanlega gætu fallið á ríkissjóð áfram verulegar, þar sem óvissa ríkir um
gæði eigna í umhverfi yfirskuldsetts einkageira, djúprar kreppu og mikils
atvinnuleysis. Í ljósi þess hve skuldir einkageirans eru í miklum mæli í
erlendum gjaldmiðlum mundi frekari gengislækkun krónunnar auka á þessa áhættu. 

„Í stöðugum horfum vegast á erfiðleikar vegna hins háa skuldahlutfalls hins
opinbera og viðkvæmra ytri skilyrða annars vegar og sannfæring okkar um að
íslenska þjóðarbúið og stofnanir þess búi yfir þeim sveigjanleika sem þarf til
að glíma við þessa erfiðleika hins vegar,“ sagði Moritz Kraemer. 

Öll skýr teikn um að hin varfærna efnahagsstefna íslenskra stjórnvalda kunni að
veikjast (t.d. ef ríkisútgjöld taka að aukast verulega eða að efnahagsáætlun
íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem studd er af
Norðurlöndunum færi út um þúfur) gæti haft neikvæð áhrif á lánshæfismat
ríkissjóðs að nýju, og lækkað einkunnina niður fyrir fjárfestingarflokk. Hins
vegar, með árangursríku áframhaldi á þeirri viðeigandi stefnu stjórnvalda sem
framfylgt hefur verið til þessa, sérstaklega ef gjaldeyrishöftum verður aflétt
á farsælan hátt og með framkvæmd áætlunar um að draga úr skuldum hins opinbera
næstu misserin, mun lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fara hækkandi. 

Meðfylgjandi er frétt Standard & Poor's (pdf-skjal):

Pièces jointes

sop311209.pdf
GlobeNewswire