Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 13 0517:
Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.680 m.kr. að nafnverði. Sex tilboðum var tekið fyrir 1.380 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 107,650 (2,92% ávöxtunarkröfu).

RIKB 16 1013:
Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.477 m.kr. að nafnverði. Fiimtán tilboðum var tekið fyrir 6.477 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,525 (5,65% ávöxtunarkröfu).

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12. júlí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 13. júlí 2011.


Pièces jointes

GlobeNewswire