Boðað er til hluthafafundar í RARIK ohf


Boðað er til hluthafafundar hjá RARIK ohf. miðvikudaginn 19. desember n.k. kl. 13:00 á skrifstofu RARIK, Bíldshöfða 9 ,Rvk.

Hluthafinn í RARIK ohf. hefur samþykkt styttingu á boðunartíma hluthafafundarins. 

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Tillaga um hækkun hlutafjár með yfirfærslu af yfirverðsreikningi, sem nemur sömu fjárhæð og ójafnað eigið fé
  2. Tillaga um lækkun hlutafjár um sömu fjárhæð til jöfnunar á tapi 

Fundarboð þetta er sent til fjármálaráðuneytisins, stjórnarmanna RARIK, forstjóra RARIK og Ríkisendurskoðunar.

Óskað er eftir að staðfesting sé send um móttöku á þessu fundarboði.

 

Fyrir hönd stjórnar

Árni Steinar Jóhannsson

Stjórnarformaður