Frá hluthafafundi RARIK ohf.
19. desember 2012
Á hluthafafundi í RARIK ohf., kt. 520269-2669, Bíldshöfða 9, Reykjavík sem haldinn var þann 19. desember 2012 að Bíldshöfða 9 voru eftirfarandi mál tekin fyrir:
- Tillaga um hækkun hlutafjár með yfirfærslu af yfirverðsreikningi, sem nemur sömu fjárhæð og ójafnað eigið fé
- Tillaga um lækkun hlutafjár um sömu fjárhæð til jöfnunar á tapi
Á fundinn mætti fulltrúi fjármálaráðuneytisins f.h. ríkissjóðs, sem er eini hluthafi félagsins.
Eftirfarandi var samþykkt:
- Hækkun á hlutafé félagsins
Fyrir fundinum lá tillaga um hækkun hlutafjár með útgáfu jöfnunarhlutabréfa að nafnverði 2.809.310.601,- kr. með yfirfærslu af yfirverðsreikningi í samræmi við 1. mgr. 43. gr. sbr. 3. mgr. 100. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995.
Tillagan var samþykkt.
- Lækkun á hlutafé félagsins
Fyrir fundinum lá tillaga um lækkun hlutafjár um 2.809.310.601,- kr. til jöfnunar taps í samræmi við 1. tl. 2. mgr. 51. gr. hlutafélagalaga.
Tillagan var samþykkt.
- Önnur mál
Forstjóra félagsins var falið að tilkynna ofangreindar breytingar á félaginu.
Fleiri mál voru ekki á dagskrá fundarins og var honum slitið.